Gotneskar ástarsögur
Þriðja brúðurin
Victoria Holt
Completo
•
9788728038055
8 horas 19 minutos
Algunos artículos contienen enlaces de afiliados (marcados con un asterisco *). Si hace clic en estos enlaces y compra productos, recibiremos una pequeña comisión sin coste adicional para usted. Su apoyo ayuda a mantener este sitio en funcionamiento y a seguir creando contenidos útiles. Gracias por su apoyo.
De la editorial
Favel Farrington hittir Roc Pendorric á eyjunni Capri, þar sem hún býr með föður sínum. Það er ást við fyrstu sýn og Favel er mjög hamingjusöm þegar hún kemur á nýja heimilið sitt, Pendorric í Cornwall, nýgift. Systir Rocs og fjölskylda taka henni opnum örmum og það kætir hana að staðarbúar gefa henni strax titilinn 'brúðurin frá Pendorric.' En gleði Favel breytist fljótt í áhyggjur. Á veggjum kastalans hanga myndir af fyrri brúðum Pendorric – ungum konum sem allar létust við dularfullar aðstæður. Sagan segir að norn hafi lagt álög á brúðir Pendorric: Brúðurin mun deyja ung og ganga aftur í kastalanum þar til ný brúður tekur við af henni. Smám saman læðist óttinn inn í líf Favel. Ill augu virðast fylgja henni um allt og eitt óhappið tekur við af öðru. Fljótlega verður Favel að viðurkenna að þjóðsagan gæti verið sönn – og að einhver sé að reyna að drepa hana. Skyndilega fá orðin 'þar til dauðinn aðskilur okkur' nýja og ískyggilega merkingu ...-