Grimmsævintýri
Skraddarinn ráðagóði
Grimmsbræður
Onverkort
•
9788728038574
7 minuten
Sommige artikelen bevatten affiliate links (gemarkeerd met een sterretje *). Als je op deze links klikt en producten koopt, ontvangen we een kleine commissie zonder extra kosten voor jou. Uw steun helpt ons deze site draaiende te houden en nuttige inhoud te blijven maken. Hartelijk dank voor uw steun!
Van de uitgever
Í ævintýrinu um Skraddarann ráðagóða segir frá ungri drambsamri kóngsdóttur sem lagði gátur fyrir alla biðla sína en engum þeirra tókst að ráða þær. Þegar litla ráðagóða skraddaranum tókst hið ómögulega, að ráða gátu kóngsdótturinnar, varð uppi fótur og fit í höllinni. Kóngsdóttirin leggur því aðra þraut fyrir skraddarann sem nú þarf að dvelja í bjarnarbúri eina nótt. Komist hann lifandi frá þeirri raun mun kóngsdóttirin standa við orð sín og giftast honum. Nú reynir á ráðagóða skraddarann gegn birninum ógurlega. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.