Grimmsævintýri
Lífsvatnið
Grimmsbræður
Onverkort
•
9788728038895
13 minuten
Sommige artikelen bevatten affiliate links (gemarkeerd met een sterretje *). Als je op deze links klikt en producten koopt, ontvangen we een kleine commissie zonder extra kosten voor jou. Uw steun helpt ons deze site draaiende te houden en nuttige inhoud te blijven maken. Hartelijk dank voor uw steun!
Van de uitgever
Þegar konungurinn liggur fyrir dauðanum leggja synir hans þrír í hættuför til að sækja handa honum lífsvatnið sem talið var það eina sem gæti bjargað lífi hans. Þeir halda af stað hver í sínu lagi en mæta allir dvergkríli sem spyr hvert þeir séu að æða. Eldri bræðurnir virtu dverginn að vettugi og svöruðu honum með hroka og dvergurinn refsar þeim. Sá yngsti sýnir hins vegar dvergnum kurteisi og fær að launum leiðbeiningar til að komast að lífsvatninu. Yngsti sonurinn biður nú dverginn um að losa bræður sína úr refsivistinni svo hann geti deilt með þeim gleðinni yfir því að hafa fundið lífsvatnið og fagra yngismey sem hann ætlaði að kvænast innan árs. Bræðurnir tveir eru þó allt annað en þakklátir fyrir björgunina og reyna allt hvað þeir geta til að komast yfir lífsvatnið og taka sér yngismeyna fyrir konu. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.